miðvikudagur, 14. mars 2007

Flug...

Úff, er að fara alveg ein til Parísar þann 24. mars.
Þrír og hálfur tími í flugi fyrir þá flughræddu mig:-S
Mér finnst alveg nóg að fljúga ein í tæpa 2 tíma, hef aðeins flogið til Glasgow síðastliðnu 8 ár:-/
Það verður allavegana mjööög skemmtilegt þegar komið verður á staðinn, sérstaklega þegar ég ætla að vera með brjáluð læti þegar Hafdís og Kristján eru að æfa sig, rústa íbúðinni þeirra og láta þau þjóna mér...MÚHAHAHAHHHAHA!
Nei, ég er ekki að fara að vera svona brjáluð Hafdís mín, ég verð voða þæg og þjóna ykkur í staðinn;-)
Í þetta skiptið ætla ég EKKI að láta flughræðsluna buga mig, vera bara chilluð á því:-D
góð ráð eru samt þegin ef einhver kann við þetta vandamál mitt?

7 ummæli:

Nafnlaus sagði...

Hæ Sólborg mín:D
Langt síðan maður hefur heyrt í þér!
Fara til Parísar, ofurfjör, ofuröfund mín megin hehe
en ég segi bara drekka sig fulla og þú munt ekki einu sinni muna eftir fluginu ;) Nei segi bara svona, þú verður bara að vera sterk, en ég get ekki sagt mikið, hef aldrei verið flughrædd!!
Kv Nína

Nafnlaus sagði...

París..úllala hvað á að bralla þar?
Og ég kannast ofurvel við þetta vandamál þitt, þó ég sé kannski meira svona flug stressuð heldur en hrædd. Jah ég veit nú samt ekki hvað skal segja, eins og nína sagði þá er alveg ágætt að fá sér aðeins í glas...maður verður miklu chillaðari hehe. Nei nei bara anda inn og út held ég því þetta tekur enda og maður er svo fegin þegar maður er komin á áfangastað!
Kv. frá Cambridge :D

Nafnlaus sagði...

haha já stelpur, en það er víst ólöglegt! :-D
Gaman að heyra í ykkur báðum!
Nína þú mátt alveg koma með mér ef þú vilt;-)

Nafnlaus sagði...

en já ég er að fara að heimsækja mínu elskulegu Hafdísi og Kristján, nú er samt ekki víst hvort ég fari....:-(

Nafnlaus sagði...

Ha er ólöglegt að vera fullur í flugvél? aldrei heyrt það áður hehe :D

Nafnlaus sagði...

Það er ólöglegt að vera ölvaður á almannafæri. Teldu upp á 30 (hægt) í flugtaki og í lendingu. Ef það verður ekki slys á meðan þessum 30 sekúndum stendur, þá verður ekki flugslys. Flugslys vera bara 30 sekúndum eftir flugtak og 30 sekúndum fyrir lendingu. Þá þarftu bara að vera hrædd í samtals mínútu :)

Góða ferð!!

Nafnlaus sagði...

haha takk fyrir þetta Hildur!