miðvikudagur, 7. mars 2007

Skólinn

Í nótt dreymdi mig að ég væri að stjórna barrokkstrengjasveitinni í Listaháskólanum og að ég væri að spila á fiðlu í annarri strengjasveit. Gæti þetta kannski verið af því ég er í barrokknámskeiði og í kórstjórn og ég spila með fiðlu?
Þetta var ekkert alltof þægilegur draumur þar sem ég kann engan veginn að spila á fiðlu, en þarna átti ég að lesa bara af blaði eins og ekkert sé! og hvað þá að stjórna heilli strengjasveit, kann rétt svo að slá takt. Pínu absúrt!

4 ummæli:

Nafnlaus sagði...

Hæ Sólborg mín gaman að heyra frá þér. Ég barasta vissi ekki af þessari síðu þinni en ég skal vera dugleg að kíkja framvegis :D
Það fer svo að styttast í það að ég komi...aðeins 100 dagara núna hehe :p hlakka svo til að hitta ykkur aftur!
Hey veistu hvað ég gerði í dag? Sótti um í háskólanum, ótrúlega grown up huh?
Síja og verðum í bandi píja :D

Sigurjón sagði...

Mig dreymir aldrei svona listræna drauma....

Nafnlaus sagði...

hæ Urður, ég vissi heldur ekki af þinni, sá bara á messanum þínum að þú værir búin að blogga þannig að ég fann þig gegnum áslaugu.

en geðveikt, til hamingju með það! hvað sóttiru um að fara í?

Nafnlaus sagði...

Alltaf jafn óþægilegt að dreyma performans á hljóðfæri sem maður kann ekki á, samanber þegar mig dreymdi að ég ætti að leika á trommusett við hátíðlegt tilefni á Sal uppi í MH.

Ekki gaman, enda náði ég ekki niður á pedalann fyrir bassatrommuna!