miðvikudagur, 30. maí 2007

Mooooneeey...

Hey, Ég er loksins búin að fá vinnu! og á stað þar sem þið getið örugglega aldrei ímyndað ykkur að ég myndi vinna á, bara ekki séns! Trúi því varla sjálf. Allavega, sá staður heitir Grund og er fyrir aldrað fólk, þannig að ef þið eruð farin að hugsa til plásss þar, bjallið endilega í mig, ég redda málunum! Ef þið þurfið líka fótsnyrtingu þá eruði að tala við réttu manneskjuna! Sóbó er orðin aðstoðarkona í fótsnyrtingu takk fyrir.
Góða veðrið er líka komið þannig að það er greinilegt að einhver góður hafi lesið ósk mína. Fær hann óendanlegar þakkir fyrir!
Það sem hins vegar hefur á daga mína drifið eru rosalega skemmtilegir hlutir eins og spólukvöld, tónleikar, útskriftarveislur, partý, boð og bara allskonar gamangaman! (og auðvitað æfingar!)
En nú þarf að vinna, make some money;-)

2 ummæli:

Nafnlaus sagði...

hellú hlakka til að sjá þig á morgun mín kæra :P ef þú kemur í ammlið hennar ólafar....

Nafnlaus sagði...

Grund já...
Alltaf gaman þar :)